Félagamiði

Félagamiði

felagamidinn3


Einn af frábærum kostum Icelandair American Express er Félagamiðinn, sem er einstakur á Íslandi.

Óháð punktasöfnun eiga Classic og Premium meðlimir möguleika á Félagamiða með Icelandair einu sinni á ári ef veltan á Classic kortinu fer yfir 2,6 milljónir og á Premium kortinu 2,2 milljónir á 12 mánaða tímabili.

Þegar Icelandair American Express meðlimir hafa náð tilskilinni veltu fá þeir einfaldlega tilkynningu senda heim þess efnis og geta þá strax boðið félaga með sér í Vildarferðina.

Það er því auðvelt að bjóða góðum ferðafélaga með til útlanda.


____________________________________________________________________________________


Spurningar og svör um Félagamiðann:

  • Þarf Félagamiðinn að vera Vildarmiði?
    Til að geta nýtt Félagamiðann þarftu að bóka flugfargjald fyrir Vildarpunkta og færð þá samskonar miða fyrir félaga þinn.

  • Gildir Félagamiðinn á hvaða farrými sem er?
    Já svo lengi sem þú kaupir upphaflega miðann með Vildarpunktum, þá áttu rétt á samskonar miða á sama farrými.

  • Hvernig bóka ég Félagamiða?
    Félagamiði er bókaður hjá sölumönnum Icelandair í síma 50 50 100. Ekki er hægt að bóka Félagamiða á vefnum.

  • Eru flugvallarskattar og aðrar greiðslur innifaldar í Félagamiðanum?
    Nei, flugvallarskattar og aðrar greiðslur eru ekki innifaldar í verði Vildarmiða né Félagamiða.

  • Get ég keypt venjulegt fargjald og fengið Félagamiða með því?
    Nei þú verður að kaupa Vildarmiða.

  • Hvað ef ég á ekki nóg af Vildarpunktum?
    Til að eiga rétt á Félagamiða þá verður aðalfargjaldið að vera bókað með Vildarpunktum. Við bendum félögum okkar á kaup og millifærslu á Vildarpunktum.

  • Get ég notað Vildarpunkta einhvers annars til að bóka aðalfargjaldið?
    Nei, við bendum fólki hins vegar á millifærslu og kaup á Vildarpunktum.

  • Get ég gefið Félagamiðann minn?
    Nei Félagamiðaréttindi eru tengd korthafa. Korthafi verður að kaupa Vildarmiða til að eiga rétt á Félagamiða. Félagamiðann er hægt að nota fyrir hvern sem er.

  • Hvað gerist ef ég nýti ekki Félagamiðann minn innan árs frá því ég öðlast réttindi á honum?
    Félagamiðaréttindin gilda í eitt ár frá því korthafi öðlast réttindin. Ef hann er ekki nýttur innan þess tíma þá renna réttindin út.

  • Hvað ef ég er nú þegar búin að bóka Vildarmiða get ég bætt Félagamiðanum við eftir á?
    Já það er hægt svo lengi sem það séu ennþá Vildarsæti í boði. Til þess að bóka Félagamiða verður að hafa samband við sölumenn Icelandair í síma 50 50 100. Athugið að Félagamiði er með sama gildistíma og aðalfargjaldið.

  • Ég er aukakorthafi, get ég nýtt Félagamiða aðalkorthafa?
    Nei Félagamiðaréttindi tengjast aðalkorthafa og verður hann því að bóka Vildarmiða fyrir sig og Félagamiðann fyrir þig.

Prenta út spurt og svarað

Nánar um skilmála Félagamiða



Þetta vefsvæði byggir á Eplica