Það er auðveldara en þú heldur að nýta Vildarpunkta og breyta þeim í margvísleg verðmæti.
Hér að neðan eru nokkur dæmi um hvernig þú getur notað punktana þína.
Icelandair - millilandaflug
Ef þú ert á leið til útlanda getur þú keypt Vildarferð með Icelandair fyrir aðeins 38.000 punkta innan Evrópu 1 og 50.000 punkta til USA 1.
Saga shop - sérvaldar snyrtivörur
Á vefsíðu Icelandair getur þú keypt sérvaldar vörur úr verslun Saga Shop fyrir Vildarpunktana þína.
Hótel - innanlands og erlendis
Þú getur keypt þér hótelgistingu fyrir Vildarpunkta, bæði hér og erlendis. Fjölmörg hótel eru í boði þar sem hægt er að nýta punktana.
Ein frábær nýjung er samstarf Vildarklúbbs Icelandair við Hilton HHonors fríðindaklúbbinn. Þú getur nú valið úr fjölmörgum Hilton hótelum í New York og á Suður-Englandi eða nýtt þér hótelið hér á Íslandi, Hilton Reykjavik Nordica.
Til að krydda tilveruna er tilvalið að skella sér út á land um helgi.
Flugfélag Íslands - innanlandsflug
Þú getur greitt flugfargjaldið þitt hjá Flugfélagi Íslands með Vildarpunktum.
Bílaleigur - hvar sem er
Fáðu þér bílaleigubíl hjá Hertz eða Sixt. Báðar þessar leigur eru með fjölbreytt úrval bíla – innan lands sem utan.
Vita ferðir
Ef þú hefur hug á að skella þér í golf eða í sólina getur þú greitt hluta ferðarinnar með Vildarpunktum hjá ferðskrifstofunni Vita.
Points.com - vel varðveitt leyndarmál
Þú getur skipt Vildarpunktunum þínum á vefsíðunni www.points.com og fengið ýmsar vörur og þjónustu í staðinn.
Frábær leið til að nota Vildarpunktana.
Verðmæti Vildarpunktanna eru augljós – þú getur bæði gert þá að dýrmætum stundum og áþreifanlegum hlutum.

