Eiginleikar
| Frábærar ferðatryggingarnar | Með Premium Icelandair American Express færðu frábærar ferðatryggingar. Nánari skilmálar eru hér á síðunni undir liðnum „Skilmálar“. |
|---|---|
| Bílaleigutrygging | Premium-meðlimir fá kaskó- og viðbótartryggingu fyrir bílaleigubíla. |
| Töf á leið á flugvöll | Premium-meðlimir fá bætur vegna tafa sem þeir lenda í á leið á alþjóðlegan flugvöll. |
| Töf vegna yfirbókunar | Premium-meðlimir fá bætur vegna tafa sem þeir verða fyrir ef yfirbókað er í flug sem þeir eiga pantað. |
| Innkaupakaskó | Innkaupakaskó er vernd sem gildir í 30 daga frá kaupum hlutar og bætir tjón sem á rætur að rekja til skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks. Innkaupakaskó gildir bæði á Íslandi og erlendis. |
| Hraðbankaheimildir |
Hraðbankaheimildir fyrir Premium meðlimi eru: Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni. |
| Neyðarþjónusta | Mikilvægur þáttur í þjónustu okkar við Premium-meðlimi er neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis. Hvar og hvenær sem er veitir SOS International Premium Icelandair American Express meðlimum aðgang að margvíslegri neyðarþjónustu, læknishjálp og peningaaðstoð. Hægt er að hafa samband við neyðarþjónustu okkar allan sólarhringinn í síma 575 5900. Nánar |
| Aukakort | Premium-meðlimum stendur til boða að fá aukakort með Premium kortinu. Ekkert árgjald er greitt fyrir aukakort fyrsta árið. |
| Öryggisatriði á ferðalögum erlendis | Ferðatryggingar og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis er eitthvað sem margir Icelandair American Express meðlimir ganga að sem vísu. Þetta er sennilega sá hluti fríðindanna sem fylgja kortunum sem fæstir hugsa mikið til, en ferðatryggingar og neyðaraðstoð getur skipt sköpum ef eitthvað kemur fyrir á ferðalögum um fjarlægar slóðir. |
| Kynntu þér þjónustuna | Við skorum á korthafa að kynna sér skilmála ferðatrygginga síns korts rækilega áður en lagt er í ferðalög auk þess getur það komið sér vel að vita hvaða aðstoð er veitt í neyðarþjónustu Icelandair American Express. Sjá nánar |
| CVC öryggisnúmer | Kreditkort vill benda meðlimum á að öryggisnúmer kortsins (CVC númer) er framan á American Express kortunum en ekki aftan á hjá undirskriftarlínunni eins og vant er. Sjá mynd af staðsetningu CVC númers |

