Neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis
Þegar snurða hleypur á þráðinn á ferðalögum erlendis er SOS-kortið einn allra veigamesti þátturinn í víðtækri þjónustu Kreditkorts hf. við meðlimi sína ásamt ferðaslysatryggingu Kreditkorts hf.
SOS International
SOS International er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í neyðarhjálp við ferðamenn og veitir fyrirtækið neyðarþjónustu allan sólarhringinn, alla daga ársins. Hvar sem er og hvenær sem er veitir SOS-kortið meðlimum aðgang að margvíslegri neyðarþjónustu, læknishjálp og peningaaðstoð, jafnvel þótt allir pappírar, peningar, kort og skilríki séu glötuð.
Neyðarkort SOS
Kreditkort hf. gefur út neyðarkort SOS þar sem er að finna öll þau símanúmer sem nauðsynlegt er að hafa við höndina komi eitthvað upp á. Tvö slík kort fylgja með öllum Icelandair American Express® kortum og mælt er með því að hafa eitt kort í veskinu og annað í t.d. ferðatöskunni eða á hótelinu.
Neyðarkortið veitir í megindráttum rétt til ferns konar aðstoðar án aukakostnaðar:
- SOS gefur góð ráð símleiðis ef vanda ber að höndum.
- SOS hefur samband við sjúkrahús og leggur fram ábyrgð fyrir
kostnaði ef þörf krefur. - SOS aðstoðar við og greiðir sjúkraflutninga ef vátryggður slasast eða veikist alvarlega erlendis. Jafnframt er veitt aðstoð við að flytja vandamenn í slíkum tilfellum.
- SOS veitir tímabundið peningalán til greiðslu sjúkra- og lögfræðikostnaðar.
Fyrir hverja?
Allir Icelandair American Express meðlimir hafa aðgang að neyðarþjónustunni fyrir sig og maka (sambýlismaka) óháð því hvort greitt er fyrir ferð þeirra með korti eða ekki. Börn þeirra, 22 ára og yngri, njóta einnig aðstoðar SOS, þegar þau eru á ferð með foreldrum sínum (hjónum eða sambýlisfólki), ef annað eða báðir eru Icelandair American Express meðlimir, t.d. með aðal- og aukakort.
Gagnleg símanúmer
Kreditkort hf./American Express neyðarsími
(+354) 575 5900
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
(+354) 440 2000
www.sjova.is
SOS International, Kaupmannahöfn
(+45) 7010 5050
Strategic Insurance Service Ltd. (bílaleigutryggingar)
(+44) 845 458 9677


