Viðskiptaskilmálar American Express.
Viðskiptaskilmálar American Express.
1. SKILGREININGAR, UMSÓKN, KORTAÚTGÁFA, GILDISTÍMI
1.1 Eftirfarandi hugtök í skilmálum þessum eru skilgreind á þennan hátt:
Reikningshafi/aðalkorthafi er sá sem gert hefur samning um stofnun kortareiknings.
Korthafi er reikningshafi eða annar sá sem reikningshafi heimilar að hafi kort, aukakorthafi, sem gefið er út á kortareikning hans.
Útgefandi er Kreditkort hf.
1.2. Útgefandi áskilur sér allan rétt til að leita allra upplýsinga um getu umsækjanda og fjárhag, sem nauðsynlegar eru að mati útgefanda til að
afgreiða umsókn, þar á meðal lánayfirlit (FE-skrá) um fjárhagsstöðu korthafa í bönkum og upplýsingar frá Creditinfo Lánstrausti hf. s.s. áhættumat, upplýsingar úr vanskilaskrá og öðrum gagnagrunnum sem félagið rekur. Útgefanda er heimilt að
fela fjármálafyrirtæki sem hann velur, að yfirfara umsókn og leita áðurnefndra upplýsinga. Áskilinn er réttur til að synja umsóknum án
skýringa.
1.3. Kreditkort áskilur sér ennfremur rétt til þess að afla þeirra upplýsinga er greinir í lið 1.2. meðan að reikningshafi er í viðskiptum hjá félaginu ef nauðsyn krefur, t.d. þegar greiðslufall verður af hálfu reikningshafa eða þegar reikningshafi hefur sótt um hækkun heimildar eða önnur þau atvik eru fyrir hendi sem gefa tilefni til að kanna fjárhagsstöðu hans.
1.4. Kreditkortið er gefið út til ákveðins tíma í senn og stofnast þá kortareikningur. Standi korthafi við skuldbindingar sínar er kort hans
endurnýjað, án umsóknar, en gegn árgjaldi. Árgjald er fært fyrirfram á kortareikning skv. gjaldskrá fyrir 12 mánuði í senn. Hægt er að
semja um útgáfu fleiri en eins korts á kortareikning reikningshafa, enda liggi fyrir samþykki reikningshafa. Korthafi þarf að leggja fram
mynd sem varðveitt er í gagnagrunni Reiknistofu bankanna (RB) sé mynd ekki þar til staðar.
1.5. Kreditkort sendir korthafa útgefið kort í pósti, nema korthafi sæki það sjálfur í afgreiðslu Kreditkorts hf.
1.6. Kortið er eign útgefanda og má hann innkalla það án fyrirvara, komi til misnotkunar eða vanskila hjá reikningshafa eða korthafa.
Korthafa ber að afhenda innkallað kort í afgreiðslu Kreditkorts hf. Afhendi korthafi ekki innkallað kort með áðurgreindum hætti getur
útgefandi sent sértakan vörslusviptingarmann til að sækja kortið.
2. ÚTTEKTARTÍMABIL
2.1. Úttektartímabil eru þrjú. Fyrir einstaklingskort er eitt úttektartímabil sem hefst 27. dag hvers mánaðar og lýkur 26. dag næsta mánaðar. Fyrir fyrirtækjakort eru tvö tímabil og velur korthafi í upphafi hvort þeirra hann notar. Annars vegar úttektartímabil sem byrjar 18. dag hvers mánaðar og lýkur 17. dag næsta mánaðar. Hins vegar úttektartímabil sem hefst 1. dag hvers mánaðar og lýkur síðasta dag sama mánaðar.
2.2. Færsluhirðar geta með samningum við einstaka seljendur eða samtök seljenda heimilað frávik frá ofangreindum úttektartímabilum, án
sérstakra tilkynninga.
3.NOTKUN KORTSINS
3.1. Korthafi skal rita nafn sitt á kortið við móttöku og hefur einn heimild til notkunar þess.
3.2. Með fyrstu notkun kortsins samþykkir reikningshafi og/eða korthafi að hlíta gildandi viðskiptaskilmálum.
3.3. Kortið veitir rétt til úttektar vöru og þjónustu hjá seljendum American Express um allan heim.
Útgefandi ber ekki ábyrgð á því ef móttöku korts er synjað sem greiðslu hjá seljanda, né því tjóni sem leitt getur af því. Með sama hætti
ber útgefandi ekki ábyrgð á því ef reiðufé fæst ekki tekið út á kortið hvort sem er í hraðbönkum eða annars staðar.
3.4. Reikningshafi skuldbindur sig til að greiða að fullu allar úttektir af kortareikningi sínum með kortum sem löglega hafa verið gefin út á
reikninginn. Skuldbindingin tekur til allra úttekta samkvæmt úttektarseðlum sem korthafi hefur undirritað, sem og úttekta sem hann hefur
heimilað við símapöntun, með rafrænum samskiptum, þar með talið internetviðskipti, eða á annan hátt samþykkt til færslu á kortareikninginn.
3.5. Aukakorthafi á einstaklingskorti ber ábyrgð á greiðslu úttekta sinna á kortareikningnum óskipt með reikningshafa, aðalkorthafi ber ábyrgð
á úttektum á aðal- og aukakortum.
Þegar um er að ræða fyrirtækjakort ber sérhver korthafi persónulega ábyrgð á öllum úttektum á kort, sem gefið er út á hans nafn, óskipt
með reikningshafanum í eftirfarandi tilvikum:
a) Geti útgefandi sannað að korthafi hafi á þeim tíma er úttektin var gerð, vitað eða mátt vita að reikningshafi gæti ekki staðið við
fjárskuldbindingar sem fólust í úttekt.
b) Þegar korthafi er eigandi, forsvarsmaður eða stjórnarmaður fyrirtækisins (reikningshafa).
c) Þegar kort er notað til úttekta á reiðufé eða kaupa á ferðatékkum.
d) Þegar kort er notað í persónulega þágu korthafans, þ.e.a.s. þegar vara, eða þjónusta, sem greitt er fyrir með kortinu er ekki í þágu
hagsmuna reikningshafans.
3.6 Úttektir erlendis eru umreiknaðar í íslenskar krónur af American Express International og berast þannig inn í kortakerfi útgefanda.
3.7. Unnt er að taka reiðufé út á kortið, en í takmörkuðu mæli þó. Ofan á slíkar úttektir innanlands og utan leggst við kostnaður og
úttektargjald samkvæmt gjaldskrá.
3.8. Þegar reiðufé er tekið út á kortið í hraðbönkum og þegar úttektir eru gerðar með notkun örgjörvalesara á sölustað, skal í stað undirskriftar
nota sérstakt einstaklingsbundið auðkennisnúmer, svokallað PIN-númer, sem korthafi fær afhent með korti sínu. Þetta er leyninúmer sem
korthafi má ekki láta aðra hafa né heldur geyma með korti sínu. Korthafi er ábyrgur fyrir öllum úttektum sem gerðar eru með PIN-númeri,
nema þegar ákvæði 12.6 á við.
3.9. Heimilt er að semja svo um að reglubundin útgjöld reikningshafa og/eða korthafa, hjá innlendum seljendum séu færð á útgefin kort.
Beiðnum reikningshafa/korthafa um skuldfærslur skal ýmist beint til útgefanda eða söluaðila og skal beiðni einstakra korthafa vera
nægileg. Verði vanskil á kortareikningi reikningshafa er útgefanda heimilt að stöðva allar greiðslur samkvæmt slíkum samningi án
fyrirvara.
4. STOFNGJALD / ÁRGJALD
4.1. Við útgáfu kortsins í fyrsta sinn greiðir korthafi stofngjald auk árgjalds. Korthafi heimilar útgefanda að skuldfæra kortareikning sinn fyrir
árgjaldi eins og það er ákveðið hverju sinni, árlega eftir að kort er gefið út í fyrsta sinn. Fyrir aðra þjónustu greiðir reikningshafi og/eða
korthafi eftir notkun samkvæmt gjaldskrá útgefanda.
4.2. Útskr/úrv.gjald /Skuldfærslugjald er innheimt fyrir hvern útsendan gíróseðil/reikning samkvæmt gjaldskrá.
5. SVEIFLUKORT
5.1 Kort gefin út á kortareikninginn eru Icelandair American Express sveiflukort.
5.2 Sveiflukort gerir korthafa kleift að greiða aðeins umsaminn hluta úttekta sinna hverju sinni, þó þannig að mánaðarlega séu greiddar að
lágmarki 5.000 krónur, enda nái skuld á kortareikningi þeirri fjárhæð, þó að því tilskildu að staða kortareiknings sé undir
heimildarmörkum eftir greiðslu á eindaga. Vextir af skuld á kortareikningi eru breytilegir og háðir ákvörðun útgefanda. Vextir reiknast ekki
af úttektum sem greiddar eru að fullu á næsta eindaga eftir að þær áttu sér stað.
6. GREIÐSLUR
6.1. Eindagi greiðslna vegna einstaklingskorta er annar dagur næsta mánaðar eftir að úttektartímabili lýkur. Eindagi greiðslna vegna fyrirtækjakorta með úttektartímabil sem hefst 18. dag hvers mánaðar og lýkur 17. dag næsta mánaðar er annar dagur næsta mánaðar eftir að úttektartímabili lýkur. Eindagi greiðslna vegna fyrirtækjakorta með úttektartímabil sem hefst 1. dag hvers mánaðar og lýkur síðasta dag sama mánaðar er sautjándi dagur næsta mánaðar á eftir. Sé eindagi á frídegi færist hann til næsta opnunardags banka.
Útgefandi sendir reikningshafa mánaðarlega yfirlit, eða veitir honum rafrænan aðgang að slíku yfirliti, um færslur á kortareikninginn á
næstliðnu timabili og upplýsingar um stöðu reikningsins við lok úttektartímabilsins auk áfallins kostnaðar og áfallinna vaxta á eindaga, auk
greiðslutilmæla með greiðsluseðli eða rafrænum hætti.
Á greiðslutilmælunum sem handhöfum sveiflukorta eru send kemur fram hver sé sú lágmarksfjárhæð sem skylt er að inna af hendi á
eindaga. Lágmarksgreiðsla skal vera 5.000 krónur, enda nái heildarskuldin þeirri fjárhæð.
Nýti reikningshafi heimild sína til að greiða aðeins hluta útistandandi skuldar, eða lágmarksfjárhæðina, reiknast vextir á ógreiddar
eftirstöðvar frá eindaga og koma til greiðslu á næsta eindaga og síðan áfram milli næstu gjalddaga, svo lengi sem reikningshafi nýtir
heimild sína til að greiða aðeins hluta skuldar sinnar.
Innborganir á kortareikninginn ráðstafast þannig að fyrst greiðist áfallinn kostnaður, þá áfallnir vextir og síðan skuld vegna úttekta.
6.2. Hafi greiðsla ekki borist á réttum eindaga, leggst vanskilagjald skv. gjaldskrá á skuldina og vanskilavextir, eins og þeir eru auglýstir af
Seðlabanka Íslands hverju sinni, frá eindaga til greiðsludags. Áskilinn er réttur til að stöðva allar greiðslur af kortareikningi, hvort heldur
sem er vegna nýrra úttekta eða umsaminna greiðslna, verði greiðslufall á einhverjum hluta gjaldkræfrar skuldar á kortareikningi
reikningshafa samkvæmt bókum útgefanda.
6.3. Útgefandi áskilur sér rétt til að fela innheimtufyrirtæki eða lögmanni innheimtu á vanskilum ásamt öllum áföllnum og áfallandi kostnaði, komi til vanskila á kortareikningi reikningshafa.
6.4. Hafi vanskil korthafa varað í a.m.k. 90 daga frá eindaga og vanskilin eru vegna skuldar sem er a.m.k. kr. 40.000,- að frátöldum áföllnum vöxtum og kostnaði, áskilur útgefandi sér rétt til að fela lögmanni í sinni þjónustu að tilkynna nafn reikningshafa á vanskilaskrá Creditinfo Ísland (Lánstrausts).
6.5. Ef korthafi eða reikningshafi hefur athugasemdir við færslu á kortareikning, skal hann tilkynna það útgefanda eigi síðar en 90 dögum eftir
skráða dagsetningu færslu á reikningsyfirliti.
6.6. Í þeim tilvikum er seljandi hefur ekki innt af hendi þá vöru eða þjónustu er korthafi greiddi fyrir með kortinu getur korthafi skilað skriflegri
kvörtun til útgefanda allt að 90 dögum eftir að afhending átti að eiga sér stað. Telji útgefandi að afhending hafi sannanlega ekki átt sér
stað endurgreiðir útgefandi korthafa andvirði hins selda. Útgefandi endurgreiðir þó aldrei úttektir hafi óviðráðanlegar ytri aðstæður, sem
falla undir venjulegar reglur kauparéttar undir force major, hamlað afhendingu.
7. ÚTTEKTARHEIMILD
7.1. Reikningshafi ábyrgist að ekki verði tekið út á einstök Icelandair American Express kort umfram útgefnar heimildir og að heildarúttektir á
kortareikning hans verði ekki umfram það sem samið hefur verið um.
7.2. Korthafi skuldbindur sig til að taka ekki út á Icelandair American Express kortið fyrir hærri fjárhæð en sem nemur úttektarheimild.
8. TRYGGINGAR
8.1. Reikningshafi og/eða korthafi skal leggja fram þær tryggingar fyrir úttektum sem útgefandi metur fullnægjandi.
9. UPPSÖGN / INNKÖLLUN
9.1. Vilji reikningshafi og/eða korthafi segja upp viðskiptum sínum skal það gert skriflega, a.m.k. tveimur mánuðum áður en árgjald kortsins
fellur í gjalddaga. Berist uppsögn síðar skal korthafi greiða gjald vegna útgáfu nýs korts. Áfallið árgjald, eða hluti þess, fellur ekki niður
þrátt fyrir uppsögn. Stofngjald kortsins er óendurkræft. Reikningshafi getur hvenær sem er tilkynnt um lokun útgefinna korta og ber ekki
ábyrgð á úttektum á lokuð kort frá því að tilkynning og kort berst útgefanda og staðfesting á lokun kortsins hefur borist frá útgefanda til
reikningshafa. Korthafi getur með sama hætti bannað frekari úttektir á kort sem gefið hefur verið út á hans nafn.
9.2. Útgefandi getur hvenær sem er sagt upp viðskiptum við reikningshafa og/eða einstaka korthafa og innkallað útgefin kort.
9.3. Innkalli útgefandi kortið, skal korthafi tafarlaust klippa kortið og senda til útgefanda. Aldrei má taka út á kort sem innkallað hefur verið af
útgefanda. Seljandi hefur fulla heimild til að klippa og/ eða taka í sína vörslu innkallað kort.
10. GLATAÐ KORT
10.1. Ef kort glatast skal korthafi tafarlaust tilkynna það útgefanda. Þegar korthafi fær nýtt kort greiðist endurútgáfugjald.
10.2. Korthafi skal, þar til tilkynning hans berst útgefanda, bera það tjón sem hann hefur orðið fyrir, vegna taps, þjófnaðar eða fölsunar á
kortinu, en þó ekki meira en sem nemur 150 evrum í hverju tjónstilviki, nema ef um stórfellt gáleysi eða svik korthafans hafi verið að
ræða.
10.3. Óheimilt er að nota kort eftir að það hefur verið tilkynnt glatað. Finnist kort skal senda það sundurklippt til útgefanda.
11. PERSÓNUVERND
11.1. Útgefandi skráir í tölvukerfi sín upplýsingar um korthafa, aukakorthafa og ábyrgðarmenn. Upplýsingar sem hér um ræðir eru m.a.
kennitala, heimilisfang og aðrar þær upplýsingar sem aðilar hafa veitt útgefanda með útfyllingu eyðublaða og forma útgefanda.
11.2. Allar upplýsingar um kortareikninga og notkun korta eru vistaðar í tölvukerfi útgefanda. Ópersónugreindar upplýsingar um færslur á korti
korthafa eru sendar American Express International, þ.e. upplýsingar um kortnúmer, hvenær færsla er gerð, fjárhæð færslu og hver er
starfsemi seljanda.
11.3 Korthafi veitir Kreditkorti hf. heimild til þess að senda SMS, MMS, tölvupóst eða önnur rafræn skilaboð að hámarki 3 sinnum í mánuði um
tilboð, afslætti eða sérkjör frá Kreditkorti hf. eða samstarfsaðilum. Korthafi veitir Kreditkorti hf. heimild til að senda korthafa skilaboð er
varðar notkun kortsins eða tilkynningar um breytingar á skilmálum kortsins. Korthafi getur valið um að afskrá sig af póstlista Kreditkorts
hf. t.d. skriflega eða símleiðis.
11.4. Vinnsla og geymsla upplýsinga skal vera í samræmi við það sem nauðsynlegt er til starfrækslu greiðslumiðlunar. Útgefandi skal gæta þess
að vinnsla og vistun persónuupplýsinga sé ætíð í samræmi við gildandi lög og reglur.
12. ÝMSIR SKILMÁLAR
12.1. Reikningshafi og/eða korthafi skulu tafarlaust tilkynna útgefanda verði breyting á heimilisfangi og netfangi hans/þeirra.
12.2. Útgefandi tekur ekki ábyrgð á gallaðri vöru eða þjónustu sem greitt er fyrir með korti, né heldur á nokkrum öðrum vanefndum seljanda
vöru eða þjónustu sem greitt er fyrir með korti. Kvörtunum út af slíku skal korthafi beina til viðkomandi seljanda.
12.3. Sé reikningshafi lögaðili eða sjálfstætt starfandi rekstraraðili áskilur útgefandi. sér rétt til að kalla eftir ársreikningum hvenær sem er á
samningstímanum, sem og þegar mat er lagt á umsókn um kort.
12.4. Kortunum fylgja ferðatryggingar. Tryggingaskilmála, eins og þeir eru á hverjum tíma, má nálgast á heimasíðu útgefanda.
12.5. Upplýsingar um þau hlunnindi er tengjast mismunandi tegundum korta má finna á heimasíðu útgefanda korts.
12.6. Telji korthafi og/eða reikningshafi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna tæknilegrar bilunar í hraðbanka eða öðru sjálfsafgreiðslutæki, hvílir
sönnunarbyrðin á útgefanda að sýna fram á að viðskiptin hafi verið rétt skráð og réttilega færð inn á reikninga og að tæknibilun eða aðrir
hnökrar hafi ekki valdið rangri skráningu sem leitt hafi til tjóns. Ábyrgð útgefanda tekur ekki til tjóns sem kann að leiða af því að umbeðin
fjárhæð, vara eða þjónusta, fæst ekki afhent.
12.7. Útgefandi tryggir korthöfum aðgang að neyðarþjónustu í síma allan sólarhringinn.
12.8. Viðskiptaskilmálar America Express korta, eins og þeir eru á hverjum tíma, eru aðgengilegir á vefslóðinni, www.americanexpress.is.
Útgefandi áskilur sér rétt til breytinga á viðskiptaskilmálunum. Breytingar á skilmálunum skulu kynntar korthöfum eigi síðar en 15 dögum
áður en breyttir skilmálar taka gildi. Í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á því ef efnislegar breytingar verða á réttindum eða
skyldum korthafa eða reikningshafa og á rétti þeirra til að hætta viðskiptum. Sé American Express kort notað eftir að breyttir skilmálar
hafa tekið gildi, teljast reikningshafi og korthafi samþykkir breytingunni. Útsending tilkynningar um breytingu á skilmálunum í almennum
pósti eða í tölvupósti telst nægileg tilkynning samkvæmt framansögðu.
12.9. Öll gjöld, kostnaður og vextir sem falla til samkvæmt skilmálum þessum fara eftir gjaldskrá og vaxtatöflu Kreditkorts hf.
13. ÁGREININGUR
13.1. Mál sem rísa út af broti á viðskiptaskilmálum þessum, svo og innheimtumál vegna úttekta með korti er heimilt að reka fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Reykjavík í apríl 2010
Kreditkort hf.
Prentvæn útgáfa Viðskiptaskilmála Icelandair American Express kortsins